Færsla bókhalds – bóka fund
Bókhaldið fært frá a til ö, afstemmingar og regluleg yfirsýn yfir stöðuna.
Þjónustan okkar er margþætt og sérsniðin að þörfum hvers og eins viðskiptavinar – hvort sem þú þarft aðstoð við einstök verkefni eða vilt að við sjáum um bókhaldið frá a til ö.
Bókhaldið fært frá a til ö, afstemmingar og regluleg yfirsýn yfir stöðuna.
Reikningar gerðir og sendir tímanlega svo tekjurnar skili sér.
Launakeyrslur og skil skilagreina til lífeyrissjóða, stéttarfélaga, RSK og annarra aðila.
Ársreikningar unnir í samræmi við lög og skilað á réttum tíma.
Skattframtöl unnin og skilað til RSK.
Ráðgjöf varðandi val á fyrirtækjaformi og aðstoð við stofnun fyrirtækja.
Yfirsýn yfir sjóðstreymi og aðstoð við að halda lausafé í jafnvægi.
Rekstrar- og fjárhagsáætlanir sem styðja við góðar ákvarðanir.
Ýmsar greiningar á tekjum, gjöldum og rekstri með nýjustu greiningartólum.
Bókhaldsþjónusta sniðin að þörfum húsfélaga.
BREYN vinnur í Microsoft Dynamics NAV (Navision) sem býður upp á þann möguleika að hafa bókhaldið nánast pappírslaust fyrir þá sem kjósa það.
Við vinnum einnig í Reglu og öðrum bókhaldskerfum, svo þú þarft ekki að skipta um kerfi til að koma í viðskipti.
Bókaðu stuttan kynningarfund og við finnum lausn sem hentar.