- Forsíða
- Persónuverndarstefna
Persónuverndarstefna
Hvernig BREYN ehf. meðhöndlar persónuupplýsingar sem berast í gegnum vefinn.
Ábyrgðaraðili
BREYN ehf., Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík. Netfang: bjork@breyn.is, sími 790 8001.
Hvaða upplýsingum er safnað
Þegar þú bókar fund í gegnum vefinn tökum við við þeim upplýsingum sem þú gefur upp:
- Nafn og netfang
- Símanúmer og fyrirtæki (valfrjálst)
- Óskaður fundartími og tegund fundar
- Umræðuefni og skilaboð
Tilgangur
Upplýsingarnar eru eingöngu notaðar til að undirbúa og halda fundinn og, ef til viðskipta kemur, til að veita umbeðna þjónustu. Þær eru ekki afhentar þriðja aðila nema lög krefjist þess.
Varðveisla
Fyrirspurnir eru ekki varðveittar lengur en þörf krefur miðað við tilganginn.
Þín réttindi
Þú átt rétt á að fá aðgang að þeim upplýsingum sem við geymum um þig og að óska eftir leiðréttingu eða eyðingu þeirra. Hafðu samband á bjork@breyn.is. Þú getur einnig beint kvörtun til Persónuverndar.